Skip to content

Almennt

Dimmalimm ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Afhendingartími er 1-4 virkir dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Dimmalimm ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sendingargjald er 1.100  kr með VSK og bætist við heildarandvirði pöntunar. Ef verslað er fyrir 15.000 kr eða meira sendum við þér vöruna frítt á næsta pósthús.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu í formi inneignarnótu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband á samband@dimmalimmreykjavik.is ef upp vakna spurningar.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur verslunarinnar á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.